Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2025 

Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur tilkynnt hver hljóta tilnefningu til verðlaunanna í ár. Þetta er í sjötta skipti sem verðlaunin eru veitt eftir að þau voru endurreist 2020.  

Tilnefningar í flokki framúrskarandi menntastofnana (smellið á heitin til að sjá greinargerðirnar):  

  • Leikskólinn Iðavöllur á Akureyri fyrir ötult, fjölbreytt og faglegt  þróunarstarf, frumkvæði og metnað.   
  • Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar fyrir metnaðarfullt og árangursríkt tónlistarstarf sem unnið er af elju og fagmensku í þágu barna.  
  • Víkurskóli í Reykjavík fyrir öflugt og metnaðarfullt þróunarstarf með áherslu á nýsköpun, hönnunarhugsun, samþættingu og leiðsagnarnám. 

Þessir kennarar eru tilefndir fyrir framúrskarandi kennslu: 

  • Gunnar Ásgeir Sigurjónsson, framhaldsskólakennari á pípulagningabraut Tækniskólans, fyrir einstaka alúð við nemendur og fagmennsku í starfi. 
  • Hjördís Óladóttir, grunnskólakennari við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, fyrir skapandi og fjölbreytta kennsluhætti og námsumhverfi í byrjendakennslu.  
  • Ingibjörg Jónasdóttir, leikskólakennari við leikskólann Rauðhól í Reykjavík, fyrir farsælt brautryðjendastarf í leikskólakennslu. 
  • Laufey Einarsdóttir, grunnskólakennari í Sæmundarskóla í Reykjavík, fyrir faglega, hugmynda- og árangursríka stærðfræðikennslu.  
  • Örvar Rafn Hlíðdal, íþróttakennari við Flóaskóla, fyrir sérlega árangursríka  íþróttakennslu.   

Þrjú verkefni eru tilnefnd í flokki framúrskarandi þróunarverkefna:  

  • Gullin í grenndinni – samvinna leikskólans Álfheima og Vallaskóla á Selfossi um nám úti í náttúrunni.  
  • Íslenskubrú Breiðholts – samstarfsverkefni grunnskólanna í Breiðholti í Reykjavík um að efla íslenskukennslu barna með annað móðurmál en íslensku.  
  • Lítil skref á leið til læsis – samstarf leikskólans Grænuvalla- og Borgarhólsskóla á Húsavík um málörvun og læsi.  

Fyrir framúrskarandi starf, verk eða framlag til iðn- eða verkmenntunar:  

Auk þess verða, við afhendingu verðlaunanna á Bessastöðum 4. nóvember, veitt sérstök hvatningarverðlaun. Þann 5. nóvember verður á dagskrá RÚV þáttur um verðlaunaveitinguna, tilnefningarnar og verðlaunahafanna. Að Íslensku menntaverðlaununum standa fjórtán aðilar undir forystu forsetaembættisins. 

Scroll to Top