Um samtökin
Samtök áhugafólks um skólaþróun eru umræðu- og samstarfsvettvangur þeirra sem áhuga hafa á markvissri þróun skólastarfs, skólaumbótum og rannsóknum. Samtökin voru stofnuð á Selfossi 18. nóvember 2005.
Samtökin henta kennurum og öðru starfsfólki skóla, stjórnendum, kennsluráðgjöfum og kennaramenntunarfólki, sem og öðrum þeim sem áhuga hafa á að efla þátt virkra kennsluaðferða, sjálfstæðra viðfangsefna, skapandi starfs, samkennslu, teymiskennslu, heildstæðrar kennslu, samvinnunáms, einstaklingsmiðaðs náms og námsmats.
Samtökin gangast fyrir ráðstefnum þar sem fólk miðlar af reynslu sinni, skiptist á skoðunum og lærir hvert af öðru. Þá halda samtökin úti upplýsingavefnum www.skolathroun.is og gefa út veftímaritið Skólaþræði, sjá á þessari slóð: www.skólaþræðir.is. Þá hafa samtökin (frá 9. nóvember 2021) umsjón með Facebook hópnum Skólaþróunarspjallið.
Samtökin annast framkvæmd Íslensku menntaverðlaunanna í samstarfi við fjölmarga aðila, sjá hér: https://skolathroun.is/menntaverdlaun/
Rúmlega 300 manns gerðust stofnfélagar en eru rúmlega 800 (júní 2022). Þeir sem áhuga hafa á að ganga til liðs við samtökin eða styðja þau er bent á að snúa sér til ritara samtakanna (skolastofan@skolastofan.is). Félagsgjald er kr. 2000.- á ári (innheimtugjald innifalið). Einnig er hægt að skrá sig [hér] og senda ritara (skolastofan@skolastofan.is) tilkynningu um skráninguna.
Kennitala samtakanna er 451205-0720