Iðn- og verkmenntun
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2024
Verkmenntaskóli Austurlands fyrir að efna til samstarfs við grunnskólana í Fjarðabyggð um framboð á fjölbreyttum verklegum valgreinum.

Árið 2021 hóf Verkmenntaskóli Austurlands að bjóða 9. og 10. bekkingum allra grunnskóla í Fjarðabyggð – frá Breiðdalsvík í suðri til Neskaupstaðar í norðri – 32 kennslustundir á skólaári í iðn- og starfsnámsgreinum að eigin vali. Þetta er hluti af námi þeirra í grunnskólanum. Áður hafði verið samstarf á milli skólastiganna í annarri mynd.
Áhugi var á því innan grunnskólanna að nemendur hefðu fleiri tækifæri til þess að kynnast fjölbreyttum iðn- og verkgreinum. Fyrir Verkmenntaskólann var þetta gott tækifæri til að kynna grunnskólanemendum skólann og að fjölga nemendum í iðn- og starfsnámi en töluverður skortur hefur verið á iðnmenntuðu fólki á Austurlandi og í raun á landinu öllu. Verkefnið fékk styrk úr Sprotasjóði og eins fékk það styrk frá Alcoa, auk stuðnings frá mennta- og barnamálaráðuneytinu.
Annar kostur verkefnisins var að þarna koma saman nemendur úr allri Fjarðabyggð og það þjappar þeim hópi saman og ýtir undir samkennd milli þeirra. Mikil ánægja hefur verið með verkefnið frá upphafi og hefur það skilað aukinni meðvitund um iðn- og starfsnám og aðsókn hefur aukist jafnt og þétt.
Meðal námskeiða sem nemendum hefur verið boðið að taka eru Fab Lab, húð og hár, myndbandsgerð, listaakademía, trésmíði, rafmagnsfræði, málm- og véltækni og bifreiðar. Hver nemandi velur sér tvær greinar og hafa þeir alltaf fengið þær sem þau kjósa helst.
Á hverju ári hafa verið gerðar kannanir bæði meðal nemendanna, sem og foreldranna, og hafa þær sýnt jákvæð viðhorf allra. Hér eru nokkur dæmi um svör nemenda við opinni spurningu um kosti námsins:
- Mjög gaman og góð tilbreyting frá því að sitja inní skólastofu
- Maður lærir margt og fær hugmyndir fyrir framtíðarvinnu
- Ég gat lært um eitthvað sem mér fannst áhugavert
- Við lærum eitthvað verklegt frekar en bóklegt
- Maður getur betur ákveðið hvort maður vill fara í verknám eða ekki
Hér eru nokkur dæmi um svör forelda nemenda:
- Krakkarnir fá að kynnast öðrum verkgreinum heldur en í grunnskólanum. Krakkarnir kynnast VA og eru mjög spenntir fyrir verknámi í frammtíðinni. Það mættu vera fleiri skipti
- Frábært tækifæri fyrir krakkana að fá svona kynningu á iðnnámi, hjálpar vafalítið við valið að grunnskóla loknum og ég viss um að þetta verður til þess að einhverjir finni sig í iðnnámi, sem hefðu það ekki gert ef ekki hefði verið fyrir þessa reynslu.
- Þetta voru uppáhalds tímarnir hjá mínu barni, hlakkaði alltaf til fimmtudaga
Gaman er að segja frá því að nemendur sem sóttu Listakademíu-námskeiðið luku því með því að heimsækja hjúkrunardeild HSA í Neskaupstað. Þar fluttu nemendur ljóð eða sungu, auk þess að þiggja veitingar og ræða við eldri borgarana. Gagnkvæm ánægja var með þessa heimsóknir sem vonandi verða að hefð í framtíðinni.