Iðn- og verkmenntun: Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Verkmenntaskólinn á Akureyri fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt

Í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast. Hugmyndin um sjálfbæra kennslustofu á sér nokkurn aðdraganda. Kennararnir í rafdeild skólans höfðu lengi velt fyrir sér hvernig þeir gætu komið námsefni um sjálfbærni og nýorku inn í kennsluna og þá sérstaklega verklegum þáttum. Þessi áhugi byggðist á tveimur forsendum, annars vegar að nemendur læri um tæknina með því að fást við raunveruleg viðfangsefni, en ekki síður að stuðla að ákveðinni viðhorfamótun, þ.e. að nemendur komi út á vinnumarkaðinn með þekkingu og hugarfar til að leysa orkumál samtímans.
Með samstarfi við og stuðningi frá Umhverfis- og orkustofnun var á síðasta skólaári sett upp sólarorkuver á þaki VMA, auk lítillar vindmyllu og búnaður settur upp í einni af kennslustofum rafdeildarinnar sem gerir nemendum kleift að vinna margs konar verkefni, m.a. að mæla framleiðslu og notkun.
Á síðustu önn unnu nemendur á lokaönn í rafvirkjun rannsóknarverkefni um sólarorku og í lok vorannar var stofan notuð í Erasmus+ verkefninu GREEN. Þar reiknuðu nemendur út framleiðslugetu miðað við breiddargráðu, mældu og báru saman við aðrar lausnir.
Í umsögn sem fylgdi tillögu að tilnefningu sagði m.a.:
VMA á skilið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar vegna frumkvöðlastarfs síns á sviði sjálfbærni, nýsköpunar og hagnýtrar kennslu. Með þróun sjálfbærrar kennslustofu, þar sem sólarsellur og vindorka sjá nemendum fyrir rafmagni til daglegra nota, hefur skólinn skapað lifandi lærdómssamfélag þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja nám sitt við raunveruleg verkefni og samfélagsáskoranir samtímans. Verkefnið sýnir skýra framtíðarsýn um hvernig iðn- og verkmenntun getur verið leiðandi afl í loftslags- og orkumálum. Nemendur taka virkan þátt í þróun, rekstri og skilningi á tækninni og öðlast þar með dýrmæta verklega reynslu, ábyrgðartilfinningu og hæfni sem nýtist þeim í framtíðarstörfum. Verkefnið stuðlar jafnframt að jákvæðum skólabrag, auknu samstarfi við atvinnulíf og sterkari tengingu milli menntunar og samfélags. Framlag VMA er bæði frumlegt og áhrifamikið og hefur skólinn með þessu sýnt hvernig skapandi hugsun, fagmennska og samstarf geta leitt til raunverulegra menntaumbóta og orðið öðrum skólum fyrirmynd.
Sjá einnig: