Víkurskóli í Reykjavík

Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2025
Skólar og aðrar menntastofnanir 

Víkurskóli í Reykjavík fyrir öflugt og metnaðarfullt þróunarstarf með áherslu á nýsköpun, hönnunarhugsun, samþættingu og leiðsagnarnám 

 

Víkurskóli er nýr skóli á unglingastigi í Grafarvogi í Reykjavík en þar hófst kennsla 2020. Nemendur eru um 240 í 8.-10. bekk. Frá upphafi var ákveðið að skólinn yrði nýsköpunarskóli. Enda þótt skólinn hafi aðeins starfað í fimm ár er hann þegar orðinn þekktur fyrir metnaðarfullt og faglegt skólastarf þar sem áhersla er lögð á samþættingu, skapandi starf og teymiskennslu.  

Samþættingin byggist á því að nemendur fást á hverju ári við mörg heildstæð og þverfagleg viðfangsefni þar sem margar námsgreinar koma við sögu, t.d. íslenska, enska, samfélagsgreinar, upplýsinga- og tæknimennt eða náttúrufræði. Þessi viðfangsefni eru í skólanum kennd við Uglur. Nemendur nýta upplýsingatækni og aðra tækni við kynningar sem haldnar eru fyrir foreldra og skólasystkin. Í Uglunum eru mikilvæg verkefni sett á dagskrá, t.d. umhverfis- og loftslagsmál, stríð og friður, kynfræðsla, flóttamannavandinn, atvinnulíf, mikilvægi tónlistar, sjálfsþekking og fordómar, svo fátt eitt sé nefnt.  

List- og verkgreinar eru kenndar í öllum árgöngum og nemendur fá fleiri stundir í þeim en viðmiðunarstundaskrá segir til um. Þetta hefur skilað sér í fjölbreyttum og dýrmætum verkefnum, þar á meðal í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur þar sem nemendur hafa bæði sýnt eigin verk og sinnt sýningarstjórn. Þá hefur Víkurskóli verið leiðandi í þróun leiðsagnarnáms og er einn af þekkingarskólum borgarinnar á því sviði. Samstarf við foreldra þykir um margt til fyrirmyndar.  

Meðal annars þróunarstarfs má nefna stærðfræðikennsluna þar sem kennarar hafa þróað aðferðir sem kenndar eru við Hugsandi skólastofu ( e. Thinking Classroom). Eins hefur starfsfólk skólans verið mjög virkt í erlendu samstarfi.  

Úr umsögn sem fylgdi tillögu að tilnefningu:  

Árangur skólans er ótvíræður fyrir margra hluta sakir. Skólinn hefur skapað sér sérstöðu og er þannig fyrirmynd annarra unglingaskóla. Í skólanum er áhersla á fjölþætt samstarf bæði innan skólans sem utan, bæði milli kennaranna og nemendanna, en einnig við aðra skóla. Skólinn á einnig í miklu evrópsku samstarfi. Starfsfólk hefur sýnt mikinn frumleika í gegnum nýskapandi áherslur sínar og hafa nemendur verið virkir bæði í listsýningum og annars konar samstarfsverkefnum. Þá hefur til að mynda innleiðing leiðsagnarnáms og nýsköpun í stærðfræðikennslu verið hluti af því að auka metnað og árangur nemenda í náminu. Skólinn leitast alltaf við að manna allar list- og verkgreinastöður með framúrskarandi kennurum. 

Kennarar og stjórnendur skólans hafa verið ötulir við að kynna þróunarstarfið með erindinum á fjölmörgum fræðslufundum og ráðstefnum. Þeir hafa, með opnum vefsíðum, veitt öðrum kennurum aðgengi að kennsluáætlunum sínum. Starf Víkurskóla hefur haft þýðingu langt út fyrir skólasamfélagið sjálft og hefur orðið öðrum skólum hvatning til að innleiða skapandi og árangursríkt nám.



Aftur á yfirlitssíðu

Scroll to Top