Samtök áhugafólks um skólaþróun efna til samkeppni um lýsingar á námi og kennslu sem byggir á valsvæðavinnu.
Margir kennarar í leik-, grunn- og framhaldsskólum skipuleggja reglulega verkefni sem nemendur leysa á vinnusvæðum sem upp eru sett – oft kennd við val, valsvæði, stöðvavinnu eða hringekjur. Stundum eru svæðin innan bekkja eða árganga, en einnig þekkist aldursblandað starf. Námið á þessum vinnusvæðum er ýmist tengt ákveðnum námsgreinum, en einnig er vitað um valsvæði sem tengjast mörgum ólíkum greinum eða samþættum viðfangsefnum.
Áhugavert er að fræðast um þessa möguleika með því að skoða góð dæmi. Margar hugmyndir er hægt að nýta þvert á skóla.
Við biðjum þá sem áhuga hafa á þátttöku að senda okkur lýsingar, skýringar og myndir af námi af þessu tagi fyrir 10. mars (skolathroun(hja)skolathroun.is). Við mat verður horft til skipulags og verkefna með hliðsjón af aldri og þroska nemenda, fjölbreytni og kennslufræðilegri útfærslu.
Veitt verða þrenn verðlaun; (1) kr. 80 þús, (2) kr. 50 þús og (3) kr. 30 þús. Samtökin áskilja sér rétt til að birta lýsingarnar í Skólaþráðum.
