Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur tilkynnt hver hljóta tilnefningu til verðlaunanna í ár. Þetta er í sjöunda skipti sem verðlaunin eru veitt eftir að þau voru endurreist 2020.  

Tilnefningar í flokki framúrskarandi menntastofnana (smellið á heitin til að sjá greinargerðirnar):  

  • Leikskólinn Gefnarborg í Suðurnesjabæ fyrir fjölbreytt og og markvisst þróunarstarf, m.a. starfshætti sem eru kenndir við læsistengda skynjun þar sem læsi, skynjun, leikur, sköpun og útinám fléttast saman með markvissum hætti.
  • Grundaskóli á Akranesi fyrir fjölbreytt og gróskumikið og margháttað þróunarstarf sem hefur m.a. beinst að því að koma sem best til móts við ólíkar þarfir nemenda.
  • Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir að þróa einstaklingsmiðað nám sem hefur það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim fært að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs.

Tilnefningar fyrir framúrskarandi kennslu:

  • Halldór Baldursson, kennari við Myndlistaskólann í Reykjavík, fyrir framúrskarandi myndlistarkennslu.
  • Jónína Lovísa Kristjánsdóttir, sérkennari við Egilsstaðaskóla og kennsluráðgjafi hjá Múlaþingi, fyrir einstakt framlag til menntunar, velferðar og farsældar barna og ungmenna.
  • Ragna Gunnarsdóttir, kennari í Flataskóla í Garðabæ, fyrir framúrskarandi kennslu á yngsta- og miðstigi
  • Sandra Ómarsdóttir, kennari í Seljaskóla í Reykjavík, fyrir framúrskarandi sviðslistakennslu.

Þrjú verkefni eru tilnefnd í flokki þróunarverkefna:

  • Samkennd og sjálfræði – þróunarverkefni í Verzlunarskóla Íslands; verkefni sem byggist á því að nemendur á fyrsta ári vinna í teymum að verkefnum sem beinast að því að láta gott af sér leiða í samfélaginu með sjálfboðavinnu.
  • Söngvavor: Samstarf um tónlistaruppeldi, málrækt og jöfn tækifæri barna. Söngvavor er samstarfsverkefni leikskóla og tónlistarskóla. Leikskólabörnin læra sönglög eftir íslensk tónskáld, heimsækja tónlistarskóla og æfa með hljómsveitum þeirra. Verkefninu lýkur með mikilli tónlistarhátíð þar sem börnin koma fram fyrir áheyrendur.
  • Stilla – hæglátt leikskólastarf, sem er samvinnuverkefni rannsakenda og starfsfólks í fjórum leikskólum, Aðalþingi í Kópavogi, Iðavelli á Akureyri, Rauðhóli í Reykjavík og Uglukletti í Borgarnesi, um að gefa börnunum tækifæri til að sökkva sér í leik og gefa þeim meiri tíma til að kanna hugmyndir sínar.

Í flokki iðn- og verkmennta eru þrjár tilnefningar:

  • Menntaskólinn á Ísafirði er tilnefndur fyrir Tímatökuhúsið – verkefni sem sýnir hvernig iðnmenntun getur tengst samfélaginu á uppbyggilegan hátt – en þetta verkefni fólst í hönnun og smíði tímatökuhúss fyrir skíðafélagið sem síðar var flutt upp á skíðasvæðið í Tungudal til notkunar við tímatöku í alpagreinum.
  • Höfundar námsefnisins Matreiðsla eru tilnefndir fyrir framúrskarandi framlag til iðn- og verkmenntunar með því að semja heildstætt og vandað námsefni fyrir matreiðslunám á framhaldsskólastigi – en þetta eru rafbækur sem hafa reynst afar vel í kennslu. Höfundar eru matreiðslumeistararnir Hermann Þór Marinósson, Hinrik Carl Ellertsson, Ragnar Wessman, Sigurður Daði Friðriksson og Ægir Friðriksson.
  • Verkmenntaskólinn á Akureyri er tilnefndur fyrir sjálfbæra kennslustofu, nýsköpunarverkefni sem er til fyrirmyndar um markvissa umhverfismennt – en í Verkmenntaskólanum á Akureyri hefur verið sett upp sólarorkuver og aðstaða sköpuð til að fást við margs konar verkefni sem því tengjast.

Hvatningarverðlaun verða veitt við athöfnina á Bessastöðum án tilnefninga og koma oft í hlut frumkvöðla eða brautryðjenda!

Scroll to Top